Lilja Bjarnadóttir sáttamiðlari og lögfræðingur kom í heimsókn til okkar og var gestur í hlaðvarpi Litla Íslands. Fjallaði hún meðal annars um mikilvægi sáttamiðlunar í rekstri.
Málarekstur er oft á tíðum tímafrekur og kostnaðarsamur og því til mikils að vinna ef unnt er að komast að lausn á skömmum tíma með sáttamiðlun.
Lilja er eigandi Sáttaleiðarinnar ehf. (www.sattaleidin.is). Hægt er að hafa samband við hana í síma 843 0611 eða í gegnum netfangið lilja@sattaleidin.is.
Sáttaleiðin ehf. er aðili að SA og SVÞ.
Hlaðvarpsþátt Litla Íslands um úrlausn ágreinings á vinnustað má hlusta á hér.