Lítil og meðalstór fyrirtæki eru stór hluti af íslensku atvinnulífi. Árið 2018 greiddu lítil og meðalstór fyrirtæki 69% af heildarlaunum í landinu. Fyrirtæki með allt að 50 starfsmenn greiddu 397 milljarða í laun og meðalstór fyrirtæki með allt að 250 starfsmenn greiddu 229 milljarða. Saman eru því lítil og meðalstór fyrirtæki stór hluti af atvinnulífi þjóðarinnar og því mikilvægt að styðja vel við og efla þau til dáða.
Litla Ísland er vettvangur fræðslu, tengsla og samstarfs lítilla og meðalstórra fyrirtækja óháð atvinnugreinum.
Tilgangurinn með verkefninu er margþættur, svo sem að:
- Efla forvarnir og stuðla að bættu rekstrarumhverfi, m.a. með fræðslu um lykilþætti í rekstri
- Gæta hagsmuna og styrkja rödd lítilla og meðalstórra fyrirtækja í atvinnulífinu
- Undirstrika mikilvægi lítilla og meðalstórra fyrirtækja í atvinnulífinu fyrir stjórnvöldum og almenningi
- Vekja athygli almennings og stjórnvalda á félagsmönnum og fyrirtækjum þeirra
- Stuðla að tengslamyndun og þekkingarmiðlun meðal eigenda og stjórnenda lítilla og meðalstórra fyrirtækja